03.10.2008 20:22:42 / Gaui
Þessi síða mun vera notuð á meðan ferð okkar til Chile stendur yfir. Dagana 18 jan til 2 mars 2009 mun allt það helsta frá Chile vera birt hér. Sími mun vera notaður takmarkað en allt getur farið fram hér eða á gaui@ispan.is
kv Gaui
»
07.09.2008 11:08:19 / Gaui
Góðan dag, nú er ég alfarið kominn á Facebook dæmið og mun framvegis nota það. Ef einhvað merkilegt gerist eða einhvað stórt og langt, þá mun ég skrifa það hér.
kv Gaui
»
24.08.2008 19:43:35 / Gaui
Baraað láta vita að ég sé hérna enþá
»
15.07.2008 22:43:14 / Gaui
Jæja, ég er búinn að vera net og tölvulaus í langann tíma svo nú er spurning hvort ég eigi að halda áfram að skrifa. Var að færa allt yfir í vodafone því síminn var ekki alveg að standa sig. Prófa þetta í 6 mánuði og sé svo til. Annars er allt gott að frétta og ekkert merkilegt búið að gerast nema það að eg hitti Gaua Jóa á laugardaginn. Ekki hef ég nú séð þann gaur í mörg ár. Við vorum tildæmis saman í hinu fræga liði Garps sem gerði garðinn frægann´í körfunni í gamla daga.
já og svo er ég að fara til ítalíu í október ,
Áfram Fram
»
15.05.2008 22:59:37 / Gaui
Ekkert hefur gerst síðan síðast. Annars byrjar boltin vel hjá Frömurum. Það eru mörg ár síðan tveir sigurleikir hafa komið í tveim fyrstu leikjunum. Vonandi er þetta það sem koma skal. Ef við vinnum skagann í næsta leik þá held ég að við verðum ofarlega en ef hann tapast þá verður þetta miðjutímabil.
»
25.04.2008 23:53:45 / Gaui
Ég fór að versla í kvöld fyrir kvöldmatinn og var farið víða. Ég set hér inn fyrirtækja merkinn, bara svona til gamans.




Merkilegt að þurfa að fara á 4 staði til að kaupa í kvöldmatinn.

Framarar eru komnir í úrslit í lengjubikarnum held ég frekar en deildarbikarnum nema hvort-tveggja sé. Þetta er annar úrslitaleikurunn sem þeir komast í nú á undurbúnings-tímabilinu. Þeir töpuðu fyrir ÍR i Reykjavíkurmótinu og meiga alls ekki tapa fyrir Val.

Svo má ekki gleyma að minna fólk á að horfa á miðvikudaginn á Liverpool vinna Chelsea í meistaradeildinni. Við klikkuðum aðeins í síðasta leik en það var bara smá mistök, þar sem svo virðist miðað við spjall síður að einn leikmaður Liverpool hafi verið einfættur. Það vita allir að það er ekki gott að spila fótbolta þegar maður haltrar á einum fæti. Svo þegar maður er einfættur þá skiptir öllu máli að nota HÖFUÐIÐ.
»
25.04.2008 16:05:04 / Gaui
Já er bara ekki kominn tími á blogg. Sumardagurinn fyrsti var í gær ef einhver skildi hafa mist af honum. Við Iggi fórum niður að Hólmaseli sem er hérna rétt hjá þar sem var haldin einhverskonar skemmtun. Þar var þetta venjulega töframannavesen. Ég skil ekki hvernig krakkar geta verið hrifnir af svona töfraveseni. Flest allt svona íslenkt töfradót er frekar lélegt. Við fengum líka þann heiður að fá að hlusta á Mercedesa Club. Þau komu þarna í kuldanum og tóku 3 lög. Það virtust allir skemmta sér vel yfir því og síðan fóru Gazman og Zeres 4 úr að ofan á meðan hinar kellingarnar voru bara í sínum bolum. Ég var nú búinn að sjá hana Rebekku áður á Nasa en mikið askoti er þetta nú lítill kvennmaður. Það er varla að maður myndi þora að koma mikið við hana. Ég held reyndar að hún yrði nú ekki neitt sérstaklega ánægð ef einhver langavitleysa færi að káfa á henni innan um alla litlu krakkana. Ekki má gleyma því að hún amma á afmæli í dag, 76 ára sú gamla.
»
21.04.2008 22:35:04 / Gaui

Ekki er hún nú stór myndin sem Kiddi bró fær til heiðurs sínu félagi.
Þetta er nú bara svona, litið félag lítil mynd,

en til hamingju með daginn.
Ekki virðist Snæfell geta unnið Kefarana. Það er alveg með ótrúlegt hvað ég þoli ekki lið frá þessum stað ( sorry Njáll, ekki taka það til þín ).
Þeir sem vilja sjá mig í nokkrar sec. Kíkið á Hæðin á stöð 2 og veljið VefTv Hæðin og velja svo Íspan.
»
20.04.2008 10:30:54 / Gaui
Var að telja bloggfærslurnar hjá mér eftir að ég sá að Garðar var kominn í 800. Þessi er semagt nr 194. Það hafa reyndar komið stopp á milli og stundum nokkur á dag.

Þessi mynd fyrir ofan minnir mann á að hættur geta verið á leikvöllum.

»
20.04.2008 00:18:58 / Gaui
Helv.. Skítal..... Svo fær maður grænar að hlusta á þennan ofmetna þjálf... sk... hjá Kefurunum. Að sjá þennan mann lætur mann fá ............. ojjj. Annars fór ég að æfa í dag,. áfram Fram
»
19.04.2008 00:33:07 / Gaui
»
17.04.2008 23:49:03 / Gaui
»
16.04.2008 21:15:14 / Gaui
»
13.04.2008 10:42:22 / Gaui
Blogg-letin er búinn að vera allsráðandi undanfarna daga. Nennti ekki einusinni að skrifa um sigur Liverpool á Arsenal í Meistaradeildinni né bústaðarferðina sem nú um helgina sem ekki varð eins og búist var við. Stefni á að horfa á enska boltann í dag. Stöð 2 sport 2 er einhverra hluta vegna opinn hjá mér þessa dagana svo þá er bara um að gera að horfa.
kveðja úr snjónum
»
04.04.2008 19:35:51 / Gaui
Stórleikur er á morgun í ensku deildinni, Aston Villa - Bolton. Bolton verður að vinna til að eiga möguleika á ða halda sér uppi. Það verður að minnast aðeins á annan leik sem skiptir líka einhverju máli. Arsenal - Liverpool, Það lítur út fyrir að Liverpool ætli að hvíla fullt af leikmönnum fyrir þriðjudagsleikinn í meistaradeildinni. Þetta verður nú samt hörkuleikur og á ég alveg eins von á að Liverpool nái jafntefli í þessum leik. Það kæmi mér nú samt ekki á ávart ef annað liðið myndi vinna. Annars er það helsta sem gerst hefur undanfarið er að 1. apríl þá voru liðin 4 ár síðan ég byrjaði að vinna í RVK. Það má jafnframt geta þess að 31. mars síðastliðin þá voru líka liðin 4 ár síðan amma júlla dó og 7 ár síðan Nelson og Paula dóu í bílslýsinu. Tíminn er fljótur að líða.
Það var líka gaman að FSU náði að komast í úrvalsdeildina í körfubolta og en betra að Valsmenn komust ekki. Það mun gerast innan tveggja mánaða að bíllinn minn fari í hreingerningu og er beðið eftir að kagginn komist í smá sumar-yfirhalningu.
Svo fer líka að nálgast 2 eða 3 maí þar sem stefnt er á rosalegt sukk og kæruleysislega meðhöndlun á áfengi. Skál fyrir því
»
Síður:
1 2 3 ...
14